Aftur í námskeið

Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á námskeiðinu er farið í grunninn í verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
  • Undirbúning verkefna og ræs.
  • Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
  • Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
  • Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
  • Skil og lúkningu verkefna.
Efnistök

Að geta notað aðferðir verkefnastjórnunar til að leysa verkefni og ná betri árangri í starfi.

Hæfniviðmið

Að geta notað aðferðir verkefnastjórnunar til að leysa verkefni og ná betri árangri í starfi.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við. 








Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.

Samstarfsaðili

Endurmenntun Háskóla Íslands

Umsjón

Sveinbjörn Jónsson

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

4 klst

Mat

Mæting

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Öll sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.