Aftur í námskeið

Gervigreind fyrir byrjendur

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Kynning á nokkrum hagnýtum verkfærum

Viltu skilja hvað gervigreind er og hvernig þú getur nýtt hana á einfaldan og hagnýtan hátt? Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Á þessu námskeiði færð þú kynningu á fjórum vinsælum gervigreindar (AI) verkfærum: ChatGPT, Perplexity, Gemini og NotebookLM.

Við sýnum þér hvernig þessi tól geta hjálpað þér að leysa hin ýmsu verkefni, spara tíma og öðlast innsýn – hvort sem þú ert að vinna, læra eða bara svala forvitninni um tæknina.
 
Það sem verður kynnt:
• hvað gervigreind er og hvernig hún virkar 
• hvernig á að nota ChatGPT til að fá svör, skrifa texta og fá hugmyndir 
• hvernig Perplexity leitar og skýrir svör með heimildum
• hvernig Gemini getur hjálpað þér með Google-verkfæri
• hvernig NotebookLM vinnur með þínum eigin gögnum

Efnistök

Að þekkja til gervigreindar og tengdra hugtaka
Að geta valið og nýtt mismunandi gervigreindartól í lífi og starfi
Að átta sig á mikilvægi þess að viðhalda gagnrýnni hugsun þegar unnið er með gervigreindartól
Að þekkja helstu styrkleika og takmarkanir núverandi gervigreindartækni

Hæfniviðmið

Að þekkja til gervigreindar og tengdra hugtaka
Að geta valið og nýtt mismunandi gervigreindartól í lífi og starfi
Að átta sig á mikilvægi þess að viðhalda gagnrýnni hugsun þegar unnið er með gervigreindartól
Að þekkja helstu styrkleika og takmarkanir núverandi gervigreindartækni

Fyrirkomulag

Sýnikennsla og umræður

Umsjón

Hermann Jónsson

Tengiliðir námskeiðs
  • Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Námsform

Streymi

Tími
  • 13. nóvember 2025 klukkan 10:00-12:00

Lengd

2 klst

Mat

Mæting

Verð

14.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Öll áhugasöm um gervigreind og almenna notendur sem vilja byrja að nýta gervigreind á einfaldan hátt

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

13.11.2025

Gervigreind fyrir byrjendur – kynning á nokkrum hagnýtum verkfærum

10:00

Hermann Jónsson