Aftur í námskeið

Almennt tölvunám, grunnur - Vefnámskeið

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

 

Námskeiðið hefst á undirbúningsviku. Á meðan á henni stendur er enn mögulegt að skrá sig og bætast í hópinn. Vegna þessa breytist dagsetning námskeiðs á vefnum. 

Námskeiðið Tölvur og tölvunotkun er kennt í formi fjarnáms og hefur hlotið einstaklega góðar undirtektir. Þetta er 10 vikna (60 klst.) tölvunámskeið og eru engar forkröfur á þekkingu gerðar. Námið fer fram með aðferðum fjarnáms sem allir ráða við. Auk þess er nemendum fylgt eftir símleiðis og þeir hafa aðgang að þjónustusíma sem er opinn frá 10.00-20.00 alla virka daga. Athugið að upptalning á efnistökum námsgreina hér á vefnum er ekki tæmandi.

1. Tölvuleikni - Windows stýrikerfið
Fjallað um viðmót og virkni Windows stýrikerfisins, kennt er að nota músina, valmyndir og hvernig möppur eru myndaðar. Unnið er með einföld forrit og skrár.
2.  Ritvinnsla Word
Kynntir eru grunnþættir í ritvinnslu, móta texta og setja inn myndir, töflur og myndrit. Fjallað verður um vefsíðugerð með Word og persónulegar fjöldasendingar (Mail merge).
3. Töflureiknir Excel
Unnið með útreikninga eins og prósentureikning, meðaltal og áætlanagerð. Einnig er fjallað um hvernig gögn eru flutt inn og úr Excel í önnur forrit.
4. Internetið og tölvupóstur
Útskýrt hvernig forritið vinnur og hvernig leitarvélar eru notaðar. Vefpóstur kynntur og hvernig hægt er að afrita myndir og texta af netinu. 
5. Upplýsingatækni
Grundvallarhugtök í upplýsingatækni kynnt, fjallað um tölvunotkun, upplýsingasamfélagið, hverju skal huga að áður en tölva er keypt, gagnavernd og vinnustellingar við tölvu.

Nánari námskeiðslýsing.

Allt efni hefur verið uppfært í samræmi við nýjustu kerfi. Kennt er á eldri kerfi fyrir þá sem þess óska. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is

ATH: Námskeiðið er einnig kennt á haustönn. Smelltu hér.




Efnistök

Aukin tölvufærni.
Þekking á helstu tölvuforritum, s.s. word og excel.
Aukin skilningur á internetinu, tölvupósti og upplýsingatækni.

Hæfniviðmið

Aukin tölvufærni.
Þekking á helstu tölvuforritum, s.s. word og excel.
Aukin skilningur á internetinu, tölvupósti og upplýsingatækni.

Fyrirkomulag
Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í 10 vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma, 533 4004, sem er opinn 10-20 virka daga.
Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi.
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson , Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir - bergthora(hjá)smennt.is
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst (0x5)
Mat
Verkefnaskil.
Verð
56.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námið hentar öllum sem vilja bæta almenna tölvufærni.