Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Færni í tölvupóstsamskiptum og netspjalli með ábyrgri notkun gervigreindar
Taktu stjórn á rafrænum samskiptum og skrifaðu tölvupósta sem byggja upp traust, spara tíma og styrkja ímynd stofnunar eða fyrirtækis.
Á þessu netnámskeiði lærir þú að koma skilaboðum á framfæri á skýran, skjótan og faglegan hátt hvort sem þau eru send til samstarfsfólks, þjónustuþega eða stjórnenda. Að auki færðu hagnýtar leiðbeiningar á mannamáli um hvernig hægt er að nota fyrirspurnir (prompt) í gervigreind á skilvirkan hátt til að fá betri og markvissari niðurstöður.
Kenndar eru einfaldar en öflugar aðferðir sem gera tölvupóstana þína skýra, hnitmiðaða og traustvekjandi.
Með námskeiðinu fylgir bókin 8 lyklar að árangursrík tölvupóstsamskiptum sem er hagnýt og aðgengileg bók með dæmum, ráðum og verkfærum sem efla rafræn samskipti.
Leiðbeinandi námskeiðsins er jafnframt höfundur bókarinnar og byggir efnið á yfir 20 ára reynslu og rannsóknarvinnu.
Að geta skrifað skýra, hnitmiðaða og faglega tölvupósta
Að geta komið í veg fyrir misskilning
Að geta nýtt gervigreind í samskiptum á gagnlegan og ábyrgan hátt
Að geta skrifað skýra, hnitmiðaða og faglega tölvupósta
Að geta komið í veg fyrir misskilning
Að geta nýtt gervigreind í samskiptum á gagnlegan og ábyrgan hátt
Námskeiðið fer fram á netinu og inniheldur fjölbreytt námsefni svo sem myndbönd, hagnýtan gátlista, sjálfsmat, fróðleiksmola, verkefni og æfingar byggðar á raunverulegum aðstæðum.
Aðgangur að efninu er í fjórar vikur frá upphafi námskeiðs – þetta er sjálfsnám þar sem þú ræður hraðanum, hvort sem þú tekur allt námið í einu lagi eða í áföngum.Gerum betur ehf.
Margrét Reynisdóttir
Á eigin hraða
10 klst
Verkefnaskil
24.500 kr
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Öll sem vilja auka gæði í rafrænum samskiptum hvort er í þjónustu við viðskiptavini, stjórnun, skrifstofustörf eða teymisvinnu