Aftur í námskeið

Þjónusta við fólk með skerta sjón

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á námskeiðinu er fjallað um mismunandi sjónskerðingar og áhrif þeirra á sjónnýtingu. Hvað gefur til kynna að einstaklingur sé með skerta sjón.  

Farið verður yfir helstu hindranir sem blindir og sjónskertir einstaklingar mæta í umhverfinu og hvernig er hægt að draga úr hindrunum og bæta aðgengi. 

Einnig verður fjallað um hagnýt ráð og nálgun, leiðsögn og algengustu hjálpartæki sem nýtast blindum og sjónskertum einstaklingum. 

Stofnanir og fyrirtæki taka á móti fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Meðal þeirra eru einstaklingar sem hafa skerta eða litla sem enga sjón og mæta oft hindrunum í daglegu lífi. Nauðsynlegt er að starfsfólk sé meðvitað um þessar helstu hindranir sem þeir mæta og þekkja leiðir til að ryðja þeim úr vegi og/ eða lágmarka þær þannig að blindir og sjónskertir viðskiptavinir njóti sömu hágæða þjónustu og aðrir viðskiptavinir. 

Námskeiðið er haldið af Starfsmennt í samstarfi við Sjónstöðina, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. 

Efnistök

Að geta veitt blindum og sjónskertum einstaklingum hágæða þjónustu til jafns við aðra viðskiptavini og þjónustuþega.
Að geta þekkt helstu vísbendingar sem gefa til kynna að viðskiptavinir séu blindir eða með skerta sjón, skilji hvaða atriði í umhverfinu geta valdið þeim vanda og hvernig hægt er að ryðja þessum hindrunum úr vegi eða lágmarka þær.
Að geta mætt blindum og sjónskertum viðskiptavinum á þeirra forsendum og geti þannig veitt þeim þjónustu til jafns við aðra viðskiptavini.

Hæfniviðmið

Fyrirkomulag

Veffyrirlestur, upptaka verður aðgengileg skráðum þátttakendum í viku eftir að námskeiði lýkur.

Gott að vita

Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en opið öðrum gegn gjaldi. Skráðir þátttakendur geta nálgast upptöku í eina viku eftir að námskeiði lýkur á "mínar síður".

Samstarfsaðili

Sjónstöðin, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu

Umsjón

Estella D Björnsson

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Streymi

Tími
  • 19. október 2023 klukkan 09:00-11:00

Lengd

2 klst

Mat

Þátttaka

Verð

12.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Starfsfólk hjá stofnunum og fyrirtækjum sem sinnir móttöku, afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini.

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

19.10.2023

Þjónusta við fólk með skerta sjón

09:00

Estella Björnsson og Vala Jóna Garðarsdóttir