Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Þetta er framhaldsnámskeið um raka og myglu í húsum. Æskilegt er að þátttakendur hafi setið fyrra námskeiðið Raki og mygla í húsum I. Markmið námskeiðsins er að kynna helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum. Farið er yfir aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaða. Kynntar verða lauslega niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu. Fjallað verður um enduruppbyggingu og verkferla við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna.
Að þekkja aðferðir til að meta myglu og mæla raka í byggingarefnum.
Að þekkja helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum.
Að geta farið yfir niðurstöður rannsókna.
Að þekkja aðferðir til að meta myglu og mæla raka í byggingarefnum.
Að þekkja helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum.
Að geta farið yfir niðurstöður rannsókna.
Fyrirlestur. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi) með því að haka við "Ég vil skrá mig í fjarnám" í skráningarferlinu.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 06.02.2025 | Raki og mygla í húsum 1 | 13:00 | Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Benjamín Ingi Böðvarsson |