Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Námskeiðið fjallar um hvernig reglur stjórnsýsluréttar og tengd lög hafa áhrif á það hvernig stjórnvöld geta þróað og notað stafrænar lausnir. Tekin eru skýr dæmi um hvernig tryggja megi réttindi borgaranna jafnframt því að nýta tækni í stafrænum samskiptum. Þú færð innsýn í raunverulegar áskoranir sem koma upp við innleiðingu tækni t.d. varðandi skráningu upplýsinga, réttindi aðila í máli og ábyrgð þegar ákvarðanir eru teknar með tölvutækni eða algrímum.
Þá verður fjallað um hvaða afleiðingar það kann að hafa ef aðferðir sem stjórnvöld nota á sviði upplýsingatækni eru ekki í samræmi við lög og reglur. Námskeiðið hjálpar þér að sjá hvernig hægt er að tryggja lögmæti og traust í stafrænu ferli.
Námskeiðið er í beinu streymi og einnig verður upptaka af því aðgengileg eftir að því lýkur.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 25.03.2026 | Hvaða kröfur gera reglur stjórnsýsluréttar til stafrænnar stjórnsýslu? | 09:00 | Kjartan Bjarni Björgvinsson |