Aftur í námskeið

Myndvinnsla með snjalltækjum - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 28. maí

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Byrjendavænt námskeið þar sem nemendur læra á ókeypis myndvinnsluforrit (með áherslu á Snapseed) í snjalltækjum, bæði símum og spjaldtölvum (Android og iPad).
Nemendur þurfa ekki að hafa neina forþekkingu og allir geta tekið þátt.
Nemendur fara í gegnum stutt en fjölbreytt verkefni þar sem lykilverkfærin eru kynnt. 

Námsþættir:

Notendaviðmótið.
Myndstillingar (e. Tune image)  
Kúrvur og Whitebalance.  
Lagfæringar og litajöfnun.
Blettabani og síur.
Breyta bakgrunni.
Portret vinnsla.
Texti & rammar.
Myndefni unnið fyrir ólíka miðla.
Og margt fleira.  

Hæfniviðmið

Að efla færni í myndvinnslu með snjalltækjum.
Að auka þekkingu á því hvernig vinna má með myndir.
Að efla færni til að nýta myndvinnslu í lífi og starfi.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar veitir kennari námskeiðsins í síma 788 8805 frá kl. 10-20 eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.

Gott að vita
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi.
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce - soffia(hjá)smennt.is
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
39.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Námið hentar þeim sem vilja auka færni sína í notkun myndvinnsluforrita.