Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Opinberir vinnustaðir þurfa á starfsfólki að halda sem vinnur störf sín af ástríðu og drifkrafti og miklum metnaði fyrir að gera vel. Slíkt starfsfólk er iðulega mjög kröfuhart á sjálft sig og aðra og getur átt á hættu að ofkeyra sig og brenna út. Því er mikilvægt að bæði stjórnendur og mannauðsfólk þekki einkennin og geti gripið í taumana og leiðbeint starfsfólki áður en í óefni er komið.
Vinnustofan er ætluð mannauðsfólki og stjórnendum hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga og er liður í að auka hæfni þeirra til að hafa áhrif á líðan starfsfólks og þar með að fækka fjarvistum vegna veikinda og kulnunar.
Jens Näsström er sænskur vinnusálfræðingur og sjálfstætt starfandi fræðimaður sem hefur sérhæft sig í velferð á vinnustöðum og aðferðum til að draga úr neikvæðum áhrifum streitu til að fyrirbyggja kulnun hjá starfsfólki. Hann hefur leiðbeint stjórnendum og mannauðsfólki í yfir tvo áratugi og leggur áherslu á að tengja fræðin við hagnýtar leiðir og á í virku samtali við mannauðsfólk og aðra sérfræðinga um að hlúa að góðri frammistöðu metnaðarfulls starfsfólks en um leið að leitast við að draga úr hættunni á andlegri örmögnun hjá þessum hópi. Rannsóknir hans ögra hefðbundnum sjónarmiðum um hvatningu, streitu og seiglu og bjóða vinnustöðum nákvæmari, fyrirbyggjandi nálgun á frammistöðu, vellíðan og langtíma atvinnuhæfni.
Jens mun halda erindi á málþingi um mannauðsmál þann 12. febrúar þar sem þemað er virkni og vellíðan á vinnumarkaði.
Á vinnustofunni þann 13. febrúar mun hann kafa dýpra í efnið og þar fá þátttakendur einnig að kynnast matstækinu AmbitionProfile og fá niðurstöður með vísbendingum um eigin stjórnunar- og leiðtogastíl.
Að skilja og geta komið auga á einkenni streitu sem leitt getur til kulnunar hjá kappsömu starfsfólki.
Að skilja eigin stjórnunar- og leiðtogastíl og þekkja hagnýtar leiðir til að aðlaga hann að þörfum einstaka starfsmanns.
Að bera kennsl á einkenni þess að undir yfirborði fagmennsku og hæfni sé starfsfólk sem á í erfiðleikum og þarfnast stuðnings.
Að geta veitt starfsfólki stuðning til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif streitu og kulnunar.
Að skilja og geta komið auga á einkenni streitu sem leitt getur til kulnunar hjá kappsömu starfsfólki.
Að skilja eigin stjórnunar- og leiðtogastíl og þekkja hagnýtar leiðir til að aðlaga hann að þörfum einstaka starfsmanns.
Að bera kennsl á einkenni þess að undir yfirborði fagmennsku og hæfni sé starfsfólk sem á í erfiðleikum og þarfnast stuðnings.
Að geta veitt starfsfólki stuðning til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif streitu og kulnunar.
Vinnustofa með fyrirlestri og verkefnum í bland þar sem ætlast er til að þátttakendur taki virkan þátt. Vinnustofan fer fram á ensku.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 13.02.2026 | Að fyrirbyggja stress og kulnun hjá kappsömu starfsfólki | 10:00 | Jens Näsström |