Aftur í námskeið

Reykjanesbær | Starfsdagur um góðan vinnustað - Hópur 1

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á góðum vinnustað eru málin rædd á uppbyggilegan og góðan hátt. 

Það má aldrei vera markmið í sjálfu sér að allir séu alltaf sáttir við alla hluti enda ekki hægt að gera öllum til hæfis. Það að vera hamingjusamur þýðir heldur ekki að maður sé ánægður með allt. En fátt er betra fyrir vinnustað en umræða um umræðuna, samtal um samtalið og vinna til að bæta vinnuna.

Í þessari krefjandi og skemmtilegu vinnustofu er rætt um nokkrar af stóru spurningunum sem allir vinnustaðir eiga að tala um eins og: Er ég ánægð(ur) í starfi? Hvað hvetur mig og hvað letur? Hvernig er starfsandinn? Hvernig er að vinna með mér?

Leiðbeinandi stýrir umræðum og blandar fræðilegu innleggi saman við umræðurnar.

Um er að ræða gefandi vinnu sem hefur góð áhrif á starfsandann og líðan á vinnustaðnum. Vinnustofan hentar mjög vel á starfsdögum og fyrir hópa sem vinna saman og vilja verða enn betri.

Efnistök
  • Samskiptafærni
  • Stóru spurningarnar
  • Starfsandi
  • Starfsánægja
Hæfniviðmið

Að öðlast aukinn skilning á því hvað hefur áhrif á starfsanda og samskipti á vinnustað.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og hagnýt verkefni

Samstarfsaðili
Reykjanesbær
Umsjón
Eyþór Eðvarðsson MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Námsform
Staðnám
Tími
  • 27. maí 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
Reykjanesbær Ráðhúsið, Grænásbraut 910, 262 Reykjanesbær
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum aldraðra og fatlaðs fólks í Reykjanesbæ