Aftur í námskeið

Fáðu meira út úr starfsmannasamtalinu

Lýsing

Langar þig að fá meira út úr starfsmannasamtalinu?

Starfsmannasamtal fer fram a.m.k. einu sinni á ári. Þá getur þú og þinn stjórnandi rætt um frammistöðu þína með skipulögðum hætti. Í samtalinu gæti m.a. verið rætt um verkefna- og ábyrgðarsvið, frammistöðu, líðan á vinnustað, starfsánægju, stjórnun, samskipti, markmið og annað sem þið teljið að þurfi að ræða. Í samtalinu gefst einnig færi á að greina fræðsluþarfir á komandi tímabili ásamt óskum um starfsþróun. 

Í starfsmannasamtali draga stjórnandinn og starfsmaðurinn sig meðvitað út úr amstri dagsins og ræða málin í stærra samhengi. Þetta getur því verið gott tækifæri fyrir þig til að hafa áhrif á eigin starf og starfsþróun. Samtalið gerir stjórnanda kleift að vinna með þér að bættum árangri og veita frekari endurgjöf og hvatningu. Starfsmannasamtalinu er ekki ætlað að koma í stað reglulegrar endurgjafar eða umræðna um málefni líðandi stundar.

Starfsmannasamtal á að vera uppbyggilegt og opinskátt samtal. Sé það framkvæmt á faglegan hátt bætir það sambandið milli stjórnanda og starfsmannsins og er hvetjandi á báða bóga.

Efnistök
  • Uppbygging starfsmannasamtala
  • Ástæður starfsmannasamtala
  • Ávinningur starfsmannasamtala
  • Að hafa áhrif á verkefni og þróun í starfi
Hæfniviðmið

Að geta sýnt frumkvæði í að hafa áhrif á eigin verkefni, ábyrgðarsvið og vinnuumhverfi.
Að þekkja eigin fræðsluþarfir og geta sett fram skýrar óskir um starfsþróun og framtíðarmarkmið.
Að geta lagt mat á eigin frammistöðu, samskipti og líðan á vinnustaðnum á uppbyggilegan hátt.
Að átta sig á mikilvægi þess að taka virkan og opinskáan þátt í skipulögðum starfsmannasamtölum.
Að geta nýtt endurgjöf og hvatningu frá stjórnanda til að bæta árangur sinn í starfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Umsjón
Ingrid Kuhlman, MSC í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Námsform
Streymi
Tími
  • 14. október 2026 klukkan 09:00-11:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
2 klst
Verð
15.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem vilja undirbúa sig fyrir starfsmannasamtal á vinnustað