Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Hvað getum við gert til að efla vellíðan og styrkja okkur í daglegu lífi og starfi?
Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur hagnýtum aðferðum úr jákvæðri sálfræði sem geta stutt við vellíðan, seiglu og betri líðan í starfi og einkalífi. Áhersla er lögð á að skoða hvað hjálpar fólki til að blómstra, byggja upp styrkleika sína og takast betur á við áskoranir og álag í daglegu lífi.
Fjallað er um hvernig hugsun, venjur og samskipti hafa áhrif á líðan og hvernig hægt er að nýta einföld verkfæri til að efla jákvæðni, sjálfstraust og jafnvægi. Einnig er skoðað hvernig við getum styrkt tengsl, aukið meðvitund um eigin styrkleika og skapað aðstæður sem styðja við vellíðan og góð samskipti á vinnustað.
Áhersla er lögð á hagnýta nálgun og aðferðir sem auðvelt er að yfirfæra á eigið líf og starf.
Að öðlast þekkingu á jákvæðri sálfæði.
Að geta nýtt mismunandi inngrip/aðferðir jákvæðrar sálfræði í daglegu lífi til aukinnar vellíðunnar og hamingju.
Að geta beitt virkri hlustun.
Fyrirlestur og æfingar.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Mæting og þátttaka
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða