Aftur í námskeið

Viðverustjórnun: Frá forvörnum til endurkomu

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Vilt þú hámarka vellíðan og velgengni á þínum vinnustað?

Á þessu námskeiði færðu hagnýt verkfæri og innsýn í reynslusögur sem styrkja getu þína til að halda í mannauðinn og efla vinnustaðinn til muna.

Viðverustjórnun er lykilþáttur í nútíma mannauðsstjórnun og snýst um mun meira en eftirlit og talningu veikindadaga. Námskeiðið byggir á heildstæðri nálgun sem spannar forvarnir, markviss viðbrögð og farsæla endurkomu starfsfólks til vinnu.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að skilja fjarveru sem merki vanlíðunar og að kunna að nýta aðrar vísbendingar til að stíga inn í vanda áður en hann verður að krísu.

Stjórnendur læra að bregðast við fjarveru á mannlegan, skýran og faglegan hátt með aðstoð samtalstækni, greiningu á mynstrum og skýrum ferlum.

Í síðari hluta námskeiðsins mun gestur úr atvinnulífinu koma í heimsókn og deila með þátttakendum vegferð sinni við innleiðingu heildstæðrar viðverustjórnunar.

Efnistök
  • Greining fjarveru sem vísbendingu um líðan einstaklingsins
  • Uppbygging markvissra forvarna
  • Viðbrögð við skammtíma- og langtímafjarveru
  • Samtalstækni í krefjandi samtölum um líðan og viðveru
  • Stuðningur við árangursríka endurkomu til vinnu
  • Hlutverk stjórnenda við stjórnun viðveru
Hæfniviðmið

Að öðlast skýrari sýn á orsakir og mynstur fjarveru.
Að öðlast hæfni til að grípa fyrr og markvissar inn í aðstæður.
Að auka færni í samtölum um viðkvæm málefni.
Að geta byggt upp markvissari og mannlegri viðverustjórnun.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Þátttakendur eru hvattir til að koma með dæmi úr eigin vinnuumhverfi til að vinna með á námskeiðinu. Ekki er þörf á sérstökum undirbúningi.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Umsjón
Hilja Guðmundsdóttir MA í kennslufræði, í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði.
Námsform
Staðnám
Tími
  • 5. nóvember 2026 klukkan 09:00-11:30
  • 19. nóvember 2026 klukkan 00:00-02:30

Lengd
5 klst (2,5x2)
Mat

Mæting og þátttaka.

Staðsetning
Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Mannauðsfólk og stjórnendur sem vilja draga úr fjarveru og styðja við vellíðan starfsfólks á markvissan hátt