Viltu dýpka þekkingu þína á Excel og læra að nýta gervigreind til að einfalda vinnuna?
Á Excel II dýpkar þú skilninginn á Excel og lærir að vinna með gögn á fljótlegri og nákvæmari hátt.
Námskeiðið byggir á því að þú kunnir grunninn og leiðir þig inn í flóknari aðferðir eins og að sía, raða og greina stærri gagnasöfn með öryggi (e. Data Validation).
Þú kynnist þeim formúlum sem skipta mestu máli í daglegu starfi og lærir að búa til snúningstöflur (e. Pivot).
Þú lærir á tengingar milli skjala og innan vinnubókar, verndun og læsingu gagna. Einnig kynnist þú hvernig gervigreindartól eins og Copilot getur aðstoðað við að greina gögn, búa til formúlur og einfalda dagleg verkefni.
Að geta unnið sjálfstætt með flóknari gagnasett í Excel
Að geta nýtt gervigreind til að auka skilvirkni og ná betri niðurstöðum í daglegum verkefnum
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.