Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.
Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.
Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.
Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér
Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað
Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju
Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti
Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum
Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 20.04.2026 | Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað | 09:00 | Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir |