Aftur í námskeið

Photoshop, myndvinnsla

Lýsing

Langar þig að læra að vinna með myndir á einfaldan og áhrifaríkan hátt?

Photoshop er öflugt myndvinnsluforrit sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum, allt frá einföldum lagfæringum til flókinna hönnunarverkefna.

Unnið er með Photoshop Elements sem býður upp á frían aðgang í mánuð.

Á þessu námskeiði lærir þú að nota grunnverkfæri forritsins, svo sem að klippa, breyta litum og bæta við texta. Þú færð tækifæri til að leysa fjölbreytt verkefni sem hjálpa þér að öðlast sjálfstraust og færni í myndvinnslu

Efnistök

Kynning á grunnverkfærum Photoshop

Lagfæringar:

  • Fjarlægja óæskileg atriði eða laga smáatriði
  • Endurbæting á eldri myndum eða myndum í slæmum gæðum
  • Leiðrétting á birtu, litum og skerpu

Breytingar:

  • Klippa út hluta mynda og setja saman nýjar
  • Skipta um bakgrunn eða bæta við þáttum

Texti og grafík:

  • Setja texta inn á myndir á skýran og aðlaðandi hátt
  • Vinna með letur, liti og einföld form til að styrkja framsetningu

Skapandi vinna:

  • Teikna eða mála stafrænt
  • Prófa mismunandi stíla og áhrif
  • Þróa hugmyndir frá fyrstu skissu að fullunnu verki
  • Undirbúningur mynda fyrir mismunandi miðla: vef, prentun eða samfélagsmiðla 
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nota Photoshop við myndvinnslu og auka þannig sköpunarmöguleika og skilvirkni
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is.

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja læra að nýta Photoshop til myndvinnslu, hvort sem er í starfi, námi eða frítíma, án þess að hafa reynslu af forritinu