Aftur í námskeið

Power BI

Lýsing

Áttu erfitt með að sjá heildarmyndina í gögnunum þínum?

Í mörgum störfum er mikið unnið með gögn, en það getur verið erfitt að sjá heildarmyndina.

Á þessu námskeiði lærir þú að vinna með gögn á skipulagðan og skýran hátt í Power BI.

Þú kynnist því hvernig sækja má gögn úr mismunandi kerfum, vinna úr þeim og setja fram á sjónrænan hátt sem auðveldar skilning. Farið er yfir hvernig búa má til mælaborð og skýrslur sem gefa skýra mynd af stöðunni, og hvernig hægt er að uppfæra gögn reglulega svo þau endurspegli raunveruleikann hverju sinni.

Einnig er fjallað um hvernig deila má niðurstöðum með öðrum á öruggan hátt og styðja þannig við samvinnu og betri ákvarðanatöku.

Efnistök
  • Grunnatriði og uppsetning Power BI
  • Innlestur gagna úr mismunandi kerfum
  • Hreinsun og úrvinnsla gagna
  • Myndræn framsetning og mælaborð
  • Rauntímauppfærslur og eftirfylgni
  • Deiling og samvinna
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að vinna með gögn í Power BI, með áherslu á að skapa skýr mælaborð og skýrslur sem nýtast í daglegu starfi
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
12 klst
Mat

Þátttaka

Verð
43.500 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja læra að nýta Power BI til gagnagreiningar og skýrslugerðar, óháð fyrri reynslu