Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis - Starfsemi Sameykis og túlkun kjarasamninga

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Farið er yfir starfsemi Sameykis og réttindi félagsfólks í sjóðum stéttarfélaganna, svo sem styrktar- og sjúkrasjóði, fræðslusjóðum, orlofssjóði og vinnudeilusjóði. Þá er farið yfir grundvallarkafla kjarasamnings þar sem fjallað er um vinnutíma og skipulag, vaktavinnu og hvíldartíma, matar- og kaffitíma, orlof, veikindarétt, uppsagnarákvæði og fleira. Einnig er fjallað um launamyndunarkerfi eins og starfsmat og stofnanasamninga.

Hæfniviðmið

Að vera meðvituð um hvernig stéttarfélagið starfar
Að þekkja sjóði stéttarfélagsins og réttindi félagsfólks í þeim
Að þekkja innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim
Að vera meðvituð um gildi kjarasamninga og ráðningarsamninga
Að þekkja til helstu launamyndunarkerfa og geta lesið sig í gegnum launamyndun einstaklinga

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Umsjón
Jóhanna Þórdórsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Jóhanna Þórdórsdóttir hjá Sameyki - johanna@sameyki.is
Námsform
Staðnám
Tími
  • 15. apríl 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
15.04.2026Starfsemi Sameykis, sjóðir og túlkun kjarasamninga09:00Starfsfólk frá Fjármáladeild, Félagsdeild og Kjaradeild Sameykis