Aftur í námskeið

Trúnaðarmenn Sameykis | Starfsemi Sameykis og túlkun kjarasamninga

Lýsing

Farið er yfir starfsemi Sameykis og réttindi félagsfólks í sjóðum stéttarfélaganna, svo sem styrktar- og sjúkrasjóði, fræðslusjóðum, orlofssjóði og vinnudeilusjóði. Þá er farið yfir grundvallarkafla kjarasamnings þar sem fjallað er um vinnutíma og skipulag, vaktavinnu og hvíldartíma, matar- og kaffitíma, orlof, veikindarétt, uppsagnarákvæði og fleira. Einnig er fjallað um launamyndunarkerfi eins og starfsmat og stofnanasamninga.

Efnistök

Starfsemi og sjóðir, þekking á rekstri félagsins og réttindum í sjóðum þess
Kjarasamningar, innihald, uppbygging og gildi samninga gagnvart ráðningarsamningum
Launamyndun, skilningur á launakerfum og hvernig laun einstaklinga eru reiknuð

Hæfniviðmið

Að vera meðvituð um hvernig stéttarfélagið starfar
Að þekkja sjóði stéttarfélagsins og réttindi félagsfólks í þeim
Að þekkja innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim
Að vera meðvituð um gildi kjarasamninga og ráðningarsamninga Að þekkja til helstu launamyndunarkerfa og geta lesið sig í gegnum launamyndun einstaklinga

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Umsjón
Jóhanna Þórdórsdóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Jóhanna Þórdórsdóttir hjá Sameyki - johanna@sameyki.is
Námsform
Streymi
Tími
  • 6. maí 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Verð
Markhópur
Trúnaðarmenn Sameykis

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
06.05.2026Starfsemi Sameykis, sjóðir og túlkun kjarasamninga09:00-12.00Starfsfólk frá Fjármáladeild, Félagsdeild og Kjaradeild Sameykis