Viltu læra að nýta Word á markvissan hátt í daglegu starfi?
Word er forritið sem flestir nota til að skrifa og búa til skjöl, en margir þekkja aðeins hluta af því sem það getur.
Á þessu námskeiði kynnist þú grunnatriðum í notkun Word. Þú lærir helstu skipanir, að setja upp skjöl á skipulegan hátt, vinna með texta og útlit, setja inn myndir og töflur og undirbúa skjöl fyrir prentun.
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.