Félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar býðst að sækja tilteknar námsleiðir hjá símenntunarmiðstöðvum og framhaldsskólum með greiðsluþátttöku Starfsmenntar.
Sendu okkur línu eða heyrðu í okkur í síma 550-0060 ef þig langar að kanna möguleikana frekar.
Ef þú ert ekki viss og vilt aðstoð við að velja næstu skref er líka hægt að spjalla við ráðgjafa og við finnum út úr þessu saman.
Símenntunarmiðstöðvar
Símenntunarmiðstöðvar víða um landið bjóða upp á hvers konar nám, raunfærnimat og ráðgjöf sem er sérstaklega ætlað að mæta þörfum fullorðinna einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki.
Starfsmennt greiðir þátttökugjöld skv. verðskrá Fræðslusjóðs í tilteknum námsleiðum.
Skráning fer fram á vef Starfsmenntar. Heyrðu endilega í okkur ef þig vantar aðstoð.
Framhaldsskólar
Starfsmennt greiðir innritunar- og einingagjöld í eftirtöldum námsleiðum:
- Félagsliði
- Stuðningsfulltrúi í skólum
- Heilbrigðisritari
- Sótthreinsitæknir
- Þjónustutæknir
Skráning fer fram hjá skólunum sjálfum og við skráningu þarf að óska eftir því að reikningur verði sendur til Starfsmenntar. Heyrðu endilega í okkur ef þig vantar aðstoð.