Móaflöt og Sigurhæð | Varnarviðbrögð
Það er mikilvægt að kunna að bregðast rétt við ef erfiðar og óæskilegar aðstæður skapast í starfi. Hér verður farið yfir hvernig þekkja má einkenni hegðunar sem gæti leitt til átaka og ofbeldis, og hvernig bregðast eigi við til þess að verjast án þess að skaða skjólstæðinginn. Þá verður einnig farið yfir hvernig má koma viðkomandi úr árásarham í jafnvægi.
Markmið
Að þátttakandur geti varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur.
Að þátttakendur þekki einkenni hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis.
Að þátttakendur geti stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.Helstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 22. febrúar kl. 17:00 - 20:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónFelix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur.
- Staðsetningí fundarsalnum Seylunni í Sveintungu á Garðatorgi í Garðabæ
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurNámskeiðið er aðeins fyrir starfsfólk hjá Skammtímadvöl Móaflöt og heimilið Sigurhæð í Garðabæ.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatMæting
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins fyrir starfsfólk hjá Skammtímadvöl Móaflöt og heimilið Sigurhæð í Garðabæ.
Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en Garðabær greiðir námskeiðsgjald fyrir aðra.
Dagskrá
Dagsetning | Námsþáttur | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
22.02.2023 | Varnarviðbrögð | 17:00 | 20:00 | Felix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur |