SSH | Einhverfa fullorðinna
Einhverfa tengist óvenjulegum taugaþroska og birtist í skynjun einstaklinga á þeim sjálfum og veröldinni, samskiptum ásamt tengslamyndun við fólk og umhverfi. Hún er yfirleitt meðfædd og til staðar ævilangt en hún kemur fram á mismunandi máta eftir aldri, þroska og færni. Sökum margbreytileika einhverfu er oft talað um einhverfuróf.
Í dag er þjónusta við fatlað fólk að stærstum hluta hjá sveitarfélögum, s.s. fjárhags- og húsnæðisaðstoð, NPA, akstursþjónustu og fleira.
Á þessu námskeiði verður fjallað um einhverfu fullorðinna og birtingarmyndir hennar.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur þekki einkenni einhverfu fullorðinna.
Að þátttakendur öðlist skilning á birtingarmyndum einhverfu fullorðinna.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefniHelstu upplýsingar
- TímiMánudagur 12. september kl. 09:00-12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónJóhanna Lilja Ólafsdóttir
- StaðsetningHúsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurNám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatÞátttaka
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi).
Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
12.09.2022 | Einhverfa fullorðinna | 09:00 | 12:00 | Jóhanna Lilja Ólafsdóttir |