SSH | Öldrun fatlaðs fólks
Það er réttur allra manna að búa við öryggi á efri árum og geta notið þeirra áhyggjulaust.
Þjónusta við aldrað fólk sem býr við fötlun skal vera fjölbreytt og miðuð við þarfir hvers og eins.
Þar sem öldrun fólks með þroskahömlun hefst oft fyrr en hjá öðrum verður þjónusta fyrir þann hóp fyrst og fremst að taka mið af mati á aðstæðum og heilsu einstaklinganna en ekki einvörðungu aldri.
Á námskeiðinu er leitast við að dýpka þekkingu þátttakenda á öldrun og öldrunarferli hjá fötluðu fólki. Fjallað verður um einkenni heilabilunar og hvernig sé best að bregðast við.
Hæfniviðmið
Að dýpka þekkingu þátttakenda á öldrun og öldrunarferli hjá fötluðu fólki.
Að þátttakendur þekki einkenni á byrjun nokkurra tegunda heilabilunar hjá fólki og hvernig bregðast skuli við henni.
Að þáttakendur þekki þær leiðir sem standa fólki með heilabilun til boða.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 4. apríl kl. 16:30 - 19:30
- Lengd3 klst.
- UmsjónVibeke Þ. Þorbjörnsdóttir Þroskaþjálfi, MA í Stjórnun, Fötlunarfræði, NordMag í Öldrunarfræðum.
- StaðsetningBSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurNámskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatMæting og þátttaka
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Andrastöðum á Kjalarnesi).
Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
04.04.2023 | Öldrun fatlaðs fólks | 16:30 | 19:30 | Vibeke Þ. Þorbjörnsdóttir |