Árangursríkari starfsmannasamtöl
- Staðnám -
Skráningu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar lýkur 13. september kl.10:00, aðrir skrá sig hjá EHÍ.
Á tímum stöðugra breytinga og áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn.
Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.
Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni.
Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir mikilvægi og tilgangi starfsmannasamtala.
Að geta beitt fjölbreyttum aðferðum við að breyta fyrirkomulagi sem hægt er að byrja strax að vinna með.
Að geta tileinkað sér betri samtalstækni og hlustun.
Að geta leitt starfsmannasamtöl á faglegan máta
Að geta veitt endurgjöf á viðeigandi máta.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræðaHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 28. september kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónInga Þórisdóttir stjórnendamarkþjálfi
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurFyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatÞátttaka
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
28.09.2023 | Árangursríkari starfsmannasamtöl | 09:00 | 12:00 | Inga Þórisdóttir |