Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað
Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.
Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.
Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér.
Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.
Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju.
Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.
Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum.
Fyrirkomulag
Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.
Helstu upplýsingar
- Tími26. september 2024 kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur 11. september kl.10.00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum og eigendur AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað.
- Gott að vita
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting og þátttaka.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
26.09.2024 | Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað | 09:00 | 12:00 | Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, og Hildur Halldórsdóttir |