Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!

- Staðnám -

Skráningu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar lýkur 26. september kl. 10:00, aðrir skrá sig hjá EHÍ.

Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun og þar af leiðandi betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.

Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hver og einn getur haft áhrif á þróun hennar.

Markmið:

  • Að öðlast þekkingu og meðvitund um mikilvægi vinnustaðamenningar.
  •  Að auka frammistöðu fyrirtækis/stofnunar.
  • Að auka starfsánægju.
  • Að auka stjórnunarhæfileika.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir því hvað vinnustaðamenning snýst um.

Að geta gert grein fyrir þvi hvað einkennir góða vinnustaðamenningu.

Að geta beitt fjölbreyttum leiðum til að efla vinnustaðamenningu.

Að geta nýtt sér rannsóknir um vinnustaðamenningu.

Fyrirkomulag

Æfingar, dæmi og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 11. október kl. 09:00 - 12:30
  • Lengd
    3,5 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum og eigendur AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir stjórnendur og alla þá sem vilja hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst. 
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
11.10.2023Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!09:3012:30Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir