Aftur í námskeið

Dómstólasýslan | Word I

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði lærir þú hvernig þú getur notað Word til þess að leysa fjölbreytt verkefni. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Þú kynnist helstu skipunum í forritinu og verkfæri. Þú lærir grunnatriði í útlitismótun og uppsetning texta og kynnist prentun. Þú vinnur með myndefni og aðlagar það að texta, vinnur með töflur, inndrátt og sniðmát (e. templates).

Efnistök

Að geta nýtt sér grunnfærni í Word forritinu.

Hæfniviðmið

Að geta nýtt sér grunnfærni í Word forritinu.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Gott að vita

Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiðir fyrir aðra.

Samstarfsaðili

Tölvuskólinn Nemandi

Umsjón

Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

18 klst

Mat

Verkefnaskil

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Starfsfólk dómstólanna