Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
- Undirbúning verkefna og ræs.
- Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
- Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
- Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
- Skil og lúkningu verkefna.
Hæfniviðmið
Að geta notað aðferðir verkefnastjórnunar til að leysa verkefni og ná betri árangri í starfi.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.
Helstu upplýsingar
- Tími24. september 2024, kl. 08.30 - 12.30. Skráningu lýkur 9. september kl. 10.00.
- Lengd4 klst.
- UmsjónSveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
- Gott að vita
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
24.09.2024 | Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin | 08:30 | 12:30 | Sveinbjörn Jónsson, M.Sc. í verkfræði og MPM. |