Akra | Gerð rekstraráætlana án launahluta
ATH. Þessi námskeið eru aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en aðrir gefi upp kennitölu þeirrar stofnunnar eða kennitölu Starfsþróunarseturs háskólamanna (5006110730) sem greiðir fyrir námskeiðið.
Nýlega var gert samkomulag á milli aðildafélaga Starfsþróunarseturs háskólamanna og Starfsmenntar. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 5006110730. Þessi tilhögun skerðir ekki einstaklingsrétt félagsmanna hjá Starfsþróunarsetrinu. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að gerð rekstraráætlana án launahluta í áætlanakerfi ríkisaðila, AKRA.
Hér fer fram kynning á áætlanaferlinu í AKRA, allt frá gerð útkomuspár og þar til áætlun hefur verið skilað til ráðuneytis. Sýnd verða ýmis atriði og möguleikar varðandi vinnu við áætlanakerfið samhliða kynningu á ferlinu sjálfu.
Námskeiðið fer fram á Teams og verður útkomuspá og rekstraráætlun dæmigerðrar stofnunar unnin í AKRA og skilað til ráðuneytis.
Hæfniviðmið
Að geta gert rekstraráætlanir án launahluta í áætlanakerfi ríkisaðila
Fyrirkomulag
FyrirlesturHelstu upplýsingar
- TímiMánudagur 9. október kl. 13:00 - 14:00
- Lengd1 klst.
- UmsjónIngvi Þór Elliðason
- StaðsetningStreymi, kennt á Teams
- TegundStreymi
- Verð6.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað þeim sem eru ábyrgir fyrir gerð rekstraráætlana án launahluta
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.10.2023 | Gerð rekstraráætlana án launahluta í áætlanakerfi ríkisaðila, Akra | 13:00 | 14:00 | Ingvi Þór Elliðason |