BVV - Mönnunarlíkan - Vefnám
Námskeið um Betri vinnutíma í vaktavinnu (BVV) eru ætluð þeim sem koma að innleiðingunni svo sem stjórnendum, vaktasmiðum og launafulltrúum hjá ríkisstofunum, Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum.
Á námskeiðinu fá stjórnendur kennslu á verkfærið ,,Mönnunarlíkan“ sem ætlað er til að auðvelda innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu og auka gegnsæi við ákvarðanatökur tengdum kerfisbreytingunum.
Markmið með námskeiðinu og líkönunum er að:
- Stjórnendur noti mönnunarlíkan sem verkfæri til að auka gegnsæi og auðvelda innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu.
- Stjórnandinn hafi yfirsýn yfir hvað raunverulega er þörf á mörgum stöðugildum miðað við núverandi mönnun, mönnun eftir umbótasamtal og þegar betri vinnutími í vaktavinnu hefur tekið gildi þann 1. maí 2021.
- Stjórnandinn geti haft yfirsýn yfir starfsmannahópinn og hvað hver og einn starfsmaður, í hlutastarfi, hefur rétt á að hækka mikið í starfshlutfalli.
- Stjórnandinn hafi yfirsýn yfir svokallað mönnunargat ef það skapast og hvernig hægt er að fylla upp í það.
- Stjórnandinn sjái á mælaborði hversu mörg stöðugildi hann hefur mannað miðað við kerfisbreytingarnar.
- Starfsfólk sé upplýst, á innleiðingartíma betri vinnutíma í vaktavinnu, um áhrif mönnunargats (ef það skapast) og hvetji til aukins starfshlutfalls þeirra sem eru í hlutastarfi.
- Samræma verklag og auka yfirsýn þeirra sem þurfa starfa sinna vegna að meta og hafa yfirsýn yfir marga vinnustaði/deildir.
- Samræma verklag við mat á mönnunarforsendum við innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu.
- Námskeiðið er kennt í gegnum TEAMS forritið.
- Námskeiðið er einungis ætlað stjórnendum hjá ríkisstofnunum, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum.
Helstu upplýsingar
- TímiFöstudagur 4. desember kl. 10:15 - 11:45
- Lengd1,5 klst.
- UmsjónBára Hildur Jóhannsdóttir, verkefnastjóri betri vinnutíma í vaktavinnu
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStjórnendur hjá ríkisstofnunum, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
04.12.2020 | Mönnunarlíkan | Bára Hildur Jóhannsdóttir |