Verkefnið Betri vinnutími í vaktavinnu er samstarfsverkefni opinberra launagreiðenda annars vegar, þ.e. ríkis, Reykjavíkurborgar og sveitarfélaga og ASÍ, BHM, BSRB og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hins vegar og byggir á breytingum á kjarasamningum aðila, sem samþykktar voru árið 2020. Um er að ræða einhverjar mestu breytingar á vinnutíma í vaktavinnu í tæplega 50 ár. Samningsaðilar óskuðu eftir því við Fræðslusetrið Starfsmennt að það hefði umsjón með fræðslu til að styðja við farsæla innleiðingu breytinganna.

Námskeiðin, sem nú eru í boði, er fræðsla til upprifjunar og er ætlunin að rifja upp markmið, leiðarljós og forsendur betri vinnutíma í vaktavinnu og fara yfir virkni og mælikvarða verkefnisins síðustu sex mánuði.

Námskeiðin eru ætluð starfsfólki í vaktavinnu hjá opinberum launagreiðendum.

Annað stuðningsefni:

Engin námskeið á döfinni í þessum flokki. Vinsamlegast líttu við síðar.