Hérna reynum við að svara algengum spurningum en ekki hika við að hafa samband við okkur með tölvupósti eða í síma, ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu.
Þegar þú skráir þig á námskeið eða inn á Mínar síður en manst ekki lykilorðið þá smellirðu á Gleymt lykilorð. Þú gefur næst upp kennitöluna þína eða netfang og þá færðu sendan hlekk. Þegar þú smellir á hlekkinn birtist texti sem segir þér að þú hafir fengið nýtt lykilorð sent í pósti. Þú notar síðan það lykilorð til skrá þig eða fara inn á Mínar síður. Mjög mikilvægt er að útbúa nýtt lykilorð á Mínum síðum sem þú notar framvegis.
Þegar þú hefur skráð þig inn á Mínar síður á vef Starfsmenntar og ferð í Námskeiðin mín og smellir á eitt námskeið, þá birtist stika fyrir ofan heiti námskeiðsins og eitt af efnisorðunum er Kennslugögn. Þar finnurðu glærur og annað efni af námskeiðinu.
Starfsmennt gerir ekki athugasemdir við þótt einstaklingur sé skráður á fleiri en eitt námskeið á sama tíma nema ef okkur finnst fjöldi námskeiða kominn fram úr hófi og ekki líklegt að þátttakandi nái að ljúka öllum námskeiðunum. Þá er haft samband og málin rædd.
Við mælum ekki með því að einstaklingur skrái sig á nema 1-2 námskeið í senn, bæði til að njóta þess að læra og ljúka náminu, en einnig vegna þess að Starfsmennt greiðir aðeins einu sinni fyrir hvern þátttakanda á hvert námskeið. Ef þú skráir þig á mörg námskeið í einu og hættir svo í einhverju þeirra á miðri leið þá áttu ekki rétt á því að við greiðslum sambærilegt námskeið fyrir þig aftur.
Svo hugsaðu þig um áður en þú skráir þig á of mörg áhugaverð námskeið, það er betra að taka eitt í einu og gera það vel.
Við skráningu þurfa allir að samþykkja skilmála Starfsmenntar bæði um greiðslur og um vinnslu persónuupplýsinga. Við skráningu kemur fram hvernig greiðslufyrirkomulag er, og ef þetta stendur
Verð:
Greitt af Starfsmennt
þá er ekki beðið um kortaupplýsingar en þú þarft engu að síður að samþykkja skilmála varðandi greiðslufyrirkomulag.
Mundu líka að yfirfara allar upplýsingar um þig, svo þær séu réttar inni í kerfinu okkar. Þetta er mjög mikilvægt, því við notum þessar upplýsingar til að hafa samband við þig, senda áminningu um námskeiðið og fleira sem okkur finnst þú þurfa að vita.