Í gáttinni er að finna námskeið sem eru skipulögð í samvinnu við Dómstólasýsluna. Þau námskeið sem merkt eru "Dómstólasýslan" eru einungis ætluð starfsfólki embættanna sem boðað hefur verið á þau. Þau standa aðildarfélögum Starfsmenntar til boða þeim að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiðir fyrir aðra. Verð birtist við skráningu á sum námskeið en í ferlinu breytist þetta hjá þeim sem eiga rétt á kostnaðarlausri þátttöku.

5 skref að skráningu:

  1. Ýta á plúsinn
  2. Fara í Upplýsingar og skráning
  3. Ýta á Skrá mig
  4. Setja inn kennitölu og velja innskráningu með lykilorði eða í gegnum Ísland.is
  5. Staðfesta skráningu

Markmið gáttarinnar er að auðvelda aðgengi að fræðslu, auka hæfni, bæta frammistöðu starfsfólks, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.

Athugið að hér birtist ekki allt námsframboð Starfsmenntar heldur aðeins valin námskeið.


Skoða öll námskeið      |      Skoða upplýsingatækninámskeið      |     Skoða þjónustunámskeið     |     Starfsþróunarráðgjöf


Á námskeiðinu verður m.a. farið í hvað felst í tímaþjófnaði, frestun, skipulagningu og áætlanagerð, fundum og fundarstjórn, að segja nei, jákvæðu hugarfari og sjálfstjórn. Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra.
Hefst:
26. september 2023
Kennari:
Ingrid Kuhlman
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi

Á námskeiðinu er annars vegar fjallað um ritun og birtingu dóma og hins vegar um formleg tölvupóstsamskipti. Farið verður í hvernig rita á og byggja upp formlegan texta og hvernig hægt er að samræma orðanotkun og málsnið á milli dómstóla.
Hefst:
11. október 2023
Kennari:
Berglind Steinsdóttir og Hermann Stefánsson
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:
Streymi