Dómstólasýslan | Excel I
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel.
Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess.
Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu.
Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna.
Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.
Hæfniviðmið
Að öðlast grunnfærni í Excel töflureikni
Fyrirkomulag
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 19. desember 2025 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk dómstólanna
- Gott að vita
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
19.12.2025 | Excel grunnur | 23:59 | 17:59 | Bjartmar Þór Hulduson |