Í gáttinni er að finna námskeið sem eru valin í samvinnu við stofnunina. Markmiðið með námskeiðunum er að auka hæfni starfsfólks, bæta frammistöðu, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.

Fyrir hverja?
Námskeið sem eru merkt stofnuninni eru aðeins ætluð starfsfólki hennar. Önnur námskeið eru valin úr almennu námsframboði Starfsmenntar.

Hver greiðir?
Sjóðir eða stofnanir greiða fyrir þátttöku á námskeið sem eru merkt stofnuninni. Um önnur námskeið gilda almennar reglur um greiðsluþátttöku.

Hvernig á að skrá sig?

  1. Smelltu á plúsinn eða nafn námskeiðsins.
  2. Smelltu á Upplýsingar og skráning.
  3. Smelltu á Skrá mig.
  4. Skráðu kennitöluna þína og smelltu á Áfram.
  5. Veldu að skrá þig inn með lykilorði eða rafrænum skilríkjum.
  6. Staðfestu skráninguna.

Að þessu loknu berst þér tölvupóstur frá okkur sem staðfestir skráningu þína á námskeið. Tölvupósturinn gæti lent í ruslpóstinum svo kíktu þangað ef þig er farið að lengja eftir staðfestingu. Hafðu endilega samband ef þig vantar aðstoð!

Skoðaðu öll námskeið Starfsmenntar      |      Viltu spjalla við náms- og starfsráðgjafa?

Fríhafnarskólinn samanstendur af mörgum námskeiðum sem leggja áherslu á þjónustu og vöruþekkingu. Námskeiðslotan verður bæði í námskerfi og staðbundin.
Hefst:
09. janúar 2024
Kennari:
Fanney Dögg Ólafsdóttir, Eymar Plédel Jónsson, Margrét Reynisdóttir, Ásgerður Guðmundsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson.
Verð:
Án kostnaðar
Tegund:

Training for the warehouse staff of Fríhöfn. It consists of various courses that are either taught online or onsite. The program starts in January and ends in March.
Hefst:
09. janúar 2024
Kennari:
Ásgerður Guðmundsdóttir, Margrét Reynisdóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir
Verð:
Án kostnaðar
Tegund: