Word II
Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn í Word. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú lærir hvað er gott að hafa í huga við vinnslu lengri skjala, hvernig þú býrð til sniðmát og mótar textasnið, helstu öryggisstillingarnar. Þú kynnist leit og útlitsmótun, aðal- og undirskjölum, kaflaskiptum og mótun eftiryfirlits. Þú lærir að stilla neðanmálsgreinar, setja upp atriðisorða- og myndaskrár, sjálfvirka og handvirka uppsetningu.
Hæfniviðmið
Að geta sett upp stór skjöl og skýrslur í Word.
Að geta nýtt forritið til gagns í lífi og starfi.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 18. desember en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- Verð39.500 kr.
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja bæta kunnáttu sína og færni í Word.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatVerkefnaskil
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
18.12.2023 | Word framhald | Bjartmar Þór Hulduson |