Millistjórnandinn

Herdís Pála fer yfir hugtakið "Self-leadership" og hvernig hægt er að nota aðferðarfræðina bæði í eigin lífi og starfi. Hún gefur hagnýt ráð til að endurnýja sig, hlaða orkustöðvarnar, þekkja sín mörk og skilja eigin þrautseigju.
Á námskeiðinu er einnig fjallað um hvernig vinnustaðir eru að breytast og framtíðarhorfur varðandi eðli vinnustaða.

Hæfniviðmið

Að geta sinnt hlutverki, áskorunum og ábyrgð millistjórnanda.

Að geta útbúið eiginn aðgerðarlista þegar stigið er inn í millistjórnunarhlutverkið.

Að geta unnið að sjálfsþekkingu.

Að geta notað self-leadership hugmyndafræðina til að taka ábyrgð á eigin fagmennsku.

Að geta útskýrt leiðtogahlutverkið og hvernig það er að þróast.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er vefnám sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 20. desember 2023 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi, stjórnendaþjálfi.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir öll sem vilja efla sig og verða farsælli leiðtogar.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu, aðrir geta skráð sig hjá Opna Háskólanum í HR.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Áhorf
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
20.12.2023Millistjórnandinn00:0001:00Herdís Pála Pálsdóttir