Aftur í námskeið

Akra | Gerð rekstraráætlana með launahluta

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

ATH. Þessi námskeið eru aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en aðrir gefi upp kennitölu þeirrar stofnunnar eða kennitölu Starfsþróunarseturs háskólamanna (5006110730) sem greiðir fyrir námskeiðið. 

Nýlega var gert samkomulag á milli aðildafélaga Starfsþróunarseturs háskólamanna og Starfsmenntar. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 5006110730. Þessi tilhögun skerðir ekki einstaklingsrétt félagsmanna hjá Starfsþróunarsetrinu. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.

Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem eru ábyrgir fyrir gerð rekstraráætlana með launahluta

Í AKRA er hægt að áætla laun einstaklinga og hópa með talsverðri nákvæmni. Hér er sýnt hvernig best er að vinna launaáætlun í AKRA, allt frá því að launaforsendur eru sóttar í ORRA og þar til launaáætlun einstaklinga og/eða hópa skilar niðurstöðum í ársáætlun.

Námskeiðið fer fram á Teams og verður launaáætlun dæmigerðrar stofnunar unnin í AKRA. 

Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eftir að námskeiðinu lýkur.
Efnistök
Að öðlast færni í gerð rekstraráætlana með launahluta
Hæfniviðmið
Að öðlast færni í gerð rekstraráætlana með launahluta
Fyrirkomulag
Fyrirlestur
Samstarfsaðili
Fjársýsla ríkisins
Umsjón
Ingvi Þór Elliðason
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform
Streymi
Tími
  • 10. október 2023 klukkan 13:00-14:00

Lengd
1 klst
Mat
Mæting
Verð
6.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem eru ábyrgir fyrir gerð rekstraráætlana með launahluta.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
10.10.2023Gerð rekstraráætlana - launahluti13:00Ingvi Þór Elliðason