BVV - Mönnunarlíkan - Vefnám

Námskeið um Betri vinnutíma í vaktavinnu (BVV) eru ætluð þeim sem koma að innleiðingunni svo sem stjórnendum, vaktasmiðum og launafulltrúum hjá ríkisstofunum, Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum. 

Á námskeiðinu fá stjórnendur kennslu á verkfærið ,,Mönnunarlíkan“ sem ætlað er til að auðvelda innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu og auka gegnsæi við ákvarðanatökur tengdum kerfisbreytingunum.

Markmið með námskeiðinu og líkönunum er að:

  • Stjórnendur noti mönnunarlíkan sem verkfæri til að auka gegnsæi og auðvelda innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu. 
  • Stjórnandinn hafi yfirsýn yfir hvað raunverulega er þörf á mörgum stöðugildum miðað við núverandi mönnun, mönnun eftir umbótasamtal og þegar betri vinnutími í vaktavinnu hefur tekið gildi þann 1. maí 2021.
  • Stjórnandinn geti haft yfirsýn yfir starfsmannahópinn og hvað hver og einn starfsmaður, í hlutastarfi, hefur rétt á að hækka mikið í starfshlutfalli.
  • Stjórnandinn hafi yfirsýn yfir svokallað mönnunargat ef það skapast og hvernig hægt er að fylla upp í það.
  • Stjórnandinn sjái á mælaborði hversu mörg stöðugildi hann hefur mannað miðað við kerfisbreytingarnar.
  • Starfsfólk sé upplýst, á innleiðingartíma betri vinnutíma í vaktavinnu, um áhrif mönnunargats (ef það skapast) og hvetji til aukins starfshlutfalls þeirra sem eru í hlutastarfi.
  • Samræma verklag og auka yfirsýn þeirra sem þurfa starfa sinna vegna að meta og hafa yfirsýn yfir marga vinnustaði/deildir.
  • Samræma verklag við mat á mönnunarforsendum við innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu.

Námskeiðið er kennt í gegnum TEAMS forritið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 3. desember kl. 10:30 - 12:00
  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Bára Hildur Jóhannsdóttir, verkefnastjóri betri vinnutíma í vaktavinnu
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Stjórnendur hjá ríkisstofnunum, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
03.12.2020MönnunarlíkanBára Hildur Jóhannsdóttir