Aftur í námskeið

Vellíðan starfsfólks

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing
Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum samtímans um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.

Á námskeiðinu verður fjallað um, frá sjónarhóli starfsfólks og vinnustaða, hvað felst í vellíðan starfsfólks. Skoðaðir verða helstu þættir sem þarf að huga að til að starfsfólki líði vel í starfi með sérstaka áherslu á jafnvægi og samþættingu vinnu og einkalífs og sveigjanleika í starfi, mikilvægi félagslegra tengsla á vinnustöðum og hlutverk leiðtoga á vinnustöðum. Rýnt verður í af hverju það skiptir máli að huga að vellíðan á vinnustöðum og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks í því samhengi.

Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvað er vellíðan í starfi, hvernig stuðlum við að vellíðan og hvað getur starfsfólkið sjálft gert til að vinna að eigin vellíðan? Hvað þurfa stjórnendur að vera meðvitaðir um og hvaða áhrif hafa vinnustaðir á líðan starfsfólks?
Efnistök

Að þekkja helstu þætti sem stuðla að vellíðan í vinnu.
Að þekkja leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða vellíðan starfsfólksins síns.

Hæfniviðmið

Að þekkja helstu þætti sem stuðla að vellíðan í vinnu.
Að þekkja leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða vellíðan starfsfólksins síns.

Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður
Gott að vita

Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 27. nóvember 2023 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem hafa áhuga á líðan á vinnustöðum, bæði stjórnendur og leiðtoga sem eru með mannaforráð og þau sem vilja huga að eigin vellíðan.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
27.11.2023Vellíðan starfsfólks13:00Þóra Þorgeirsdóttir