SSH - Nauðung í starfi með fötluðu fólki
Á námskeiðinu verður fjallað um hugtökin nauðung og þvingun út frá mismunandi sjónarhornum, svo sem lagalegum, sálfræðilegum, hagnýtum, hugmyndafræðilegum, félagslegum, læknisfræðilegum, siðferðilegum, sögulegum og sumir út frá eigin reynslu af nauðung og þvingun, annaðhvort sem gerendur eða þolendur. Fjallað verður helstu lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur kynnist hugtakinu nauðung í starfi og í hverju það felst.
Að þátttakendur þekki lög og reglur varðandi nauðung í starfi með fötluðum.
Að þátttakendur geti afstýrt ólögmætum árásum.
Að þátttakendur þekki öruggustu leiðina til að verja sig.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiÞriðjudagur 17. maí kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónÁstríður Erlendsdóttir.
- StaðsetningHúsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar
- MarkhópurNám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is5500060
- MatMæting
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi).
Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
17.05.2022 | Nauðung | 09:00 | 12:00 | Ástríður Erlendsdóttir |