Akra | Gerð rekstraráætlana - launahluti, vaktavinnufólk

ATH. Þessi námskeið eru aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en aðrir gefi upp kennitölu þeirrar stofnunnar eða kennitölu Starfsþróunarseturs háskólamanna (5006110730) sem greiðir fyrir námskeiðið. 

Nýlega var gert samkomulag á milli aðildafélaga Starfsþróunarseturs háskólamanna og Starfsmenntar. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna getur látið senda reikning á Starfsþróunarsetrið og gefið upp kennitölu þess 5006110730. Þessi tilhögun skerðir ekki einstaklingsrétt félagsmanna hjá Starfsþróunarsetrinu. Athugið að ekki er nóg að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.

Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem sjá um launahluta rekstraráætlananna hjá vaktavinnustofnunum. 


Í AKRA er hægt að áætla laun einstaklinga og hópa með talsverðri nákvæmni. Hér er sýnt hvernig best er að vinna launaáætlun í AKRA, allt frá því að launaforsendur eru sóttar í ORRA og þar til launaáætlun einstaklinga og/eða hópa skilar niðurstöðum í ársáætlun.

Námskeiðið fer fram á Teams og verður launaáætlun dæmigerðrar stofnunar unnin í AKRA.

Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eftir að námskeiðinu lýkur.

Hæfniviðmið

Að öðlast öryggi og færni til að vinna rekstraráætlanir fyrir vaktavinnustofnanir

Fyrirkomulag

Fyrirlestur

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Föstudagur 13. október kl. 10:00 - 11:00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingvi Þór Elliðason
  • Staðsetning
    Streymi, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    6.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þetta námskeið er eingöngu ætlað þeim sem sjá um launahluta rekstraráætlana hjá vaktavinnustofnunum
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
13.10.2023Gerð rekstraráætlana hjá vaktavinnustofnunum - launahluti10:0011:00Ingvi Þór Elliðason