Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað

- Staðnám - 

Skráningu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar lýkur 5. september kl.10:00, aðrir skrá sig hjá EHÍ.

Góð samskipti á vinnustað eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.

Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.

Markmið:

  • Að auka vellíðan á vinnustað.
  •  Að auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað.
  • Að auka sjálfstraust í samskiptum.
  • Að auka skilning á eðli viðbragða ásamt hegðun annarra.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér.

Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.

Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju.

Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.

Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum.

Fyrirkomulag

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 20. september kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir er MA í Human Resource Management frá University of Westminster og Hildur Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir alla þá sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
20.09.2023Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað09:0012:00Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir