Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Vilt þú læra að skrifa skipanir fyrir ChatGPT sem skila árangri? Finnst þér þú stundum þurfa hjálp við að móta hugmyndir og leysa sköpunargáfuna úr læðingi? Viltu hætta að eyða tíma í verkefni sem þú gætir látið tölvuna sjá um?
Á þessu þriggja tíma námskeiði lærir þú að skrifa áhrifaríkar skipanir fyrir ChatGPT og spara með því dýrmætan tíma. Kenndar verða aðferðir við að móta skipanir á þann hátt að ChatGPT skili nákvæmlega því sem þú vilt að það skili, það sem kallast á ensku prompt engineering.
Að geta geta skrifað áhrifaríkar og skilvirkar skipanir í ChatGPT
Að geta geta skrifað áhrifaríkar og skilvirkar skipanir í ChatGPT
Fyrirlestur og æfingar í tíma. Mikilvægt er að nemendur hafi keypt sér aðgang að ChatGPT 4 áður en námskeiðið hefst.
Ef þátttakandi er þegar skráður með aðgang hjá Opna Háskólanum í HR mun viðkomandi fá póst frá Starfsmennt um að skrá sig á námskeiðið beint hjá þeim en með greiðsluupplýsingum Starfsmenntar.
Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR. ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum.
Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík
Staðnám
3 klst
Mæting og þátttaka
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námskeiðið er ætlað hinum almenna notanda og er grunnnámskeið þar sem aðal áherslan er á að móta skipanir fyrir ChatGPT.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
06.12.2024 | Gervigreind fyrir venjulegt fólk | 09:00 | Grímur Sæmundsson |