Aftur í námskeið

Fagnám í umönnun fólks með fötlun

Lýsing

Breyttar áherslur í starfi með fólki með fötlun kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.

Námið miðar að því að auka færni og þekkingu á aðstæðum og þörfum fólks með fatlanir í því skyni að efla lífsgæði þeirra og virkni. Þar er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fólks með fatlanir.

Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Námið spannar 324 klukkustundir en 164 stundir eru með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun).

Nánar má sjá um námið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Efnistök
  • Velferðarþjónustan og hugmyndafræði fötlunar
  • Fatlanir og þjónustuþörf
  • Erfðir og þroski
  • Mannréttindi og siðferði
  • Geðsjúkdómar og lyf
  • Lífstíll og heilsa
  • Samskipti og samvinna
  • Starfið og námið
  • Áföll og afleiðingar
  • Framkvæmd þjónustu við fatlað fólk
  • Lokaverkefni og starfsþjálfun
Hæfniviðmið
Að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.
Fyrirkomulag

Kennsla hefst 2. nóvember 2026 og lýkur 25. febrúar 2027. Jólafrí hefst 9. desember 2026.

Kennsla fer fram í vefnámi á Teams mánudaga og miðvikudaga kl. 17.00 - 20.30. Einnig er staðlota einn laugardag í mánuði í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 230 Reykjanesbæ, 3. hæð. Mögulegt er að hlusta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans. 

Nánari upplýsingar um námið veita Nanna Bára og Hólmfríður í síma 4217500 eða í tölvupósti nanna@mss.is / namskeid@mss.is.

Gott að vita

Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.

Umsjón
Ýmsir sérfræðingar
Námsform
Blandað
Tími
  • 2. nóvember 2026

Námi lýkur 25. febrúar 2027. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
324 klst
Mat
Verkefnaskil ásamt 80% mætingarskyldu og virkri þátttöku.
Staðsetning
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Þau sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra