Aftur í námskeið

SSH | Skyndihjálp I

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. 

Námskeiðin í skyndihjálp eru þrjú. Á fyrsta námskeiðinu, Skyndihjálp I, er fjallað um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun og aðskotahlut í öndunarvegi með sérstaka áherslu á t.d fólk í hjólastólum. Einnig er fjallað um viðbrögð við flogaveikiskasti og meðvitundarleysi.

Þegar fólk hefur lokið Skyndihjálp I  II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.

Hæfniviðmið
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar
Gott að vita

Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Andrastöðum á Kjalarnesi).

Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.

Umsjón
Laufey Elísabet Gissurardóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 9. febrúar 2023 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur
Nám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
09.02.2023Skyndihjálp - I13:00Laufey Gissurardóttir