Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
- Staðnám -
Skráningu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar lýkur 2. októberber kl. 10:00, aðrir skrá sig hjá EHÍ.
Á námskeiðinu verður fjallað um lagaumhverfi í skjalastjórn á Íslandi og hvernig skjalastjórn tengist mikilvægum málefnum á vinnustöðum eins og rekjanleika gagna og ákvarðana ásamt tengslum þekkingar og gæða og þekkingarstjórnunar. Jafnframt verður fjallað um mismunandi tegundir skjala og meðhöndlun þeirra sem og gerð eftirfarandi: skjalastefnu, skjalavistunaráætlunar, málalykils, skjalakerfis og lýsigagna. Auk þess verða rafræn skil tekin fyrir.
Markmið:
Að geta notað fjölbreyttar leiðir við greiningu gagna.
Að geta metið kosti og galla við innleiðingu og hönnun skjalakerfis.
Að geta gert grein fyrir þroskastigi í skjalastjórn.
Að geta notað ólíkar leiðir við meðhöndlun skjala, s.s. tölvupóstur, pappír, teikningar, ljósmyndir, bækur og skýrslur.
Að geta beitt þekkingarstjórnun, þ.e.a.s. að þekking sé ekki falin hjá einstaka starfsmönnum.
Að geta gert grein fyrir hlutverki héraðskjalasafna og Þjóðskjalasafns Íslands.
Að geta útskýrt ISO 15489 alþjóðlegan staðal um skjalastjórn.
Að geta útskýrt virkni rafrænna skila, grisjunar, skráningu, pökkun og skjalageymslum.

Fyrirlestrar, umræður og létt verkefnavinna.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Sömu kennarar
Staðnám
6 klst (3x2)
Mæting, þátttaka.
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Fyrir þá sem vinna með stjórnun gagna á sínum vinnustað, s.s. vistun, skráningu og pökkun. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
17.10.2023 | Fyrirmyndar skjalastjórn - aðferðir og hagnýt ráð | 09:00 | Þorgerður Magnúsdóttir og Eva Ósk Ármannsdóttir |