Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
- Staðnám -
Skráningu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar lýkur 26. september kl. 10:00, aðrir skrá sig hjá EHÍ.
Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun og þar af leiðandi betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.
Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hver og einn getur haft áhrif á þróun hennar.
Markmið:
Að geta gert grein fyrir því hvað vinnustaðamenning snýst um.
Að geta gert grein fyrir þvi hvað einkennir góða vinnustaðamenningu.
Að geta beitt fjölbreyttum leiðum til að efla vinnustaðamenningu.
Að geta nýtt sér rannsóknir um vinnustaðamenningu.

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námskeiðið er fyrir stjórnendur og alla þá sem vilja hafa jákvæð áhrif á
vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 11.10.2023 | Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli! | 09:30 | Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir |