Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Nútíma byggingar eru oftar en ekki hlaðnar tæknikerfum af ýmsum toga. Starf umsjónar- og rekstaraðila bygginga/fasteigna hefur því undanfarin misseri tekið stakkaskiptum hvað varðar kröfur um tæknilæsi og meðhöndlun upplýsinga. Eitt öflugasta verkfæri umsjónarmanna í dag er hússtjórnarkerfi en meginmarkmið þess er að stýra notkun, samræma og vakta hin ýmsu tæknikerfi byggingarinnar.
Námskeiðið veitir innsýn í vaxandi mikilvægi tæknilegs rekstrar á opinberum og einkareknum byggingum. Farið verður yfir markmið og verkefni rekstrarsviðs og þau verkfæri og kerfi sem umsjónaraðilar og rekstraraðilar fasteigna/bygginga þurfa að hafa til að geta sinnt starfi sínu á skilvirkan hátt.
Að geta gert grein fyrir helstu kröfum notanda til tæknikerfa í byggingum.
Að geta útskýrt uppbyggingu Hússtjórnarkerfis og helstu tæknikerfa bygginga.
Að geta gert grein fyrir notkunarmöguleikum hússtjórnarkerfis.
Að geta framkvæmt bilanaleit og útskýrt fyrirbyggjandi aðgerðir með hússtjórnarkerfi.
Að þekkja verkferla við eftirlit og geta gert grein fyrir stjórnun orkunotkunar í byggingum.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða